GDRN & Magnús Jóhann á Hótel Búðum
Tónlistarveisla með kvöldverði & gistingu. Annar í aðventu.
Tónlistarveislan á Hótel Búðum snýr aftur í þriðja sinn og hefur fest sig í sessi sem einn vinsælasti vetrarviðburður landsins. Sex helgar í röð fyllist hótelið af lifandi tónlist, einstökum mat og hlýlegri stemningu í hjarta Snæfellsness.
Helgina 4. og 5. desember, annan í aðventu, munu þau GDRN og Magnús Jóhann, mæta á Hótel Búðir og flytja öll sín bestu lög. Þau halda reglulega vinsæla jólatónleika í kringum aðventuna, þar sem þau flytja lög af sameiginlegri jólaplötu sinni „Nokkur jólaleg lög“, auk annarra þekktra laga. Viðburðurinn verður því uppfullur af dásamlegri tónlist, jólalegri stemningu, góðum mat og notalegri dvöl á hótelinu.
Innifalið fyrir tvo
• Fordrykkur við komu
• Þriggja rétta kvöldverður
• Lifandi tónleikar með GDRN og Magnúsi Jóhanni í lounge rými hótelsins
• Gisting í eina nótt
• Ljúffengur morgunverður daginn eftir
Tryggðu þér sæti í tíma. Undanfarin tvö ár hafa nær allar tónlistarhelgar selst upp og eftirspurnin verið gríðarleg.
Við hlökkum til að taka á móti þér og þínum!
Fyrir fyrirtækja- og hópabókanir er hægt að hafa samband á budir@budir.is





















