🎶 Friðrik Dór og Jón Jónssynir á Hótel Búðum 🎶
Komdu og njóttu á Hótel Búðum föstudaginn 1. maí. Frábærir tónleikar, matur, drykkur & gisting í fegurðinni á Snæfellsnesi. Blanda sem getur ekki klikkað.
Hafnfirsku bræðurnar, Friðrik Dór og Jón, verða á sama tíma og sama stað föstudaginn 1. maí en þá ætla þeir að mæta á Hótel Búðir og sjá til þess að allir komist góðan sumargír. Á efnisskránni verða þeirra vinsælustu lög, bæði þau sem fá mann til að syngja hástöfum en líka þau sem eru aðeins rólegri og snerta hjartað. Stemningin verður allt í senn afslöppuð, lífleg og persónuleg.
Innifalið í verði fyrir tvo:
- Fordrykkur
- Þriggja rétta kvöldverður
- Tónleikar með þeim bræðrum
- Gisting í huggulegu herbergi í eina nótt
- Ljúffengur morgunverður
Hótel Búðir er eitt fegursta sveitahótel landsins með mikla sögu og hefur nýlega gengist undir endurbætur, meðal annars með nýbyggingu og fjölgun herbergja. Skelltu þér á viðburð á Snæfellsnesinu sem sameinar frábæra tónlist, ljúffengan mat og kyrrláta fegurð náttúrunnar.
Dagskrá:
Innritun frá kl 15
Kvöldverður frá kl 18 - tímasetning bókuð síðar
Tónleikar í lounge rýminu kl 21/21.30
Morgunverður frá 8-10
Útritun kl 11

Ath. Myndir af herbergjum eru teknar úr Standard Superior herbergi úr glænýrri viðbyggingu. Myndir af öðrum herbergjatýpum má sjá inn á heimasíðu Hótel Búða.
Tryggðu þér sæti í tíma – takmarkað framboð.
Ath. Vegna mikillar aðsóknar er ekki hægt að nýta gjafabréf yfir tónleika-/viðburðahelgar. Gjafabréfin gilda hins vegar alla aðra daga (okt til lok maí) og við hlökkum til að taka á móti ykkur.











