ÓX pop up á Hótel Búðum - Kjör fyrir tvo í herbergi
Fordrykkur, fimm rétta kvöldverður í anda Óx ásamt sérvöldu víni, gisting á Búðum og morgunverður daginn eftir. Þetta er svo sannarlega spennandi og einstakur viðburður sem þú vilt ekki missa af.
ÓX veitingastaður við Laugaveg í Reykjavík er einn þriggja veitingastaða hér á landi sem hafa hlotið hina þekktu Michelin stjörnu en það var árið 2022 sem staðurinn hlaut þá stjörnu. Það var síðan í fyrra, 2025, sem græn Michelin stjarna bættist við, fyrir framúrskarandi sjálfbærni í starfsemi staðarins.
Nú býðst áhugasömum að mæta á þennan einstaka viðburð á Hótel Búðum, Snæfellsnesi, þar sem Þráinn Freyr Vigfússon matreiðslumeistari og eigandi ÓX ætlar að halda gómsætan og glæsilegan viðburð í anda veitingastaðarins.
Þráinn Frey þarf vart að kynna; matreiðslumeistari og fyrrverandi Bocuse d'Or keppandi með áralanga reynslu í fremstu röð matargerðar. Auk þess að vera hugmyndasmiðurinn á bak við ÓX, á og rekur hann einnig geysivinsæla Sumac veitingastað og Amma Don "speak easy" bar, þar sem hann blandar saman hefðum og nýsköpun í einstaka upplifun.
Innifalið í verði - Tveggja manna herbergi:
- Fordrykkur
- Fimm rétta smakkseðill í þema ÓX
- Vínpörun
- Gisting í heillandi herbergi í eina nótt
- Ljúffengur morgunverður
Við hlökkum til að taka á móti þér & þínum! Tryggðu þér pláss í tíma - í fyrra seldist upp á augabragði.

Hótel Búðir er eitt fegursta sveitahótel landsins með mikla sögu og hefur nýlega gengist undir endurbætur, meðal annars með nýbyggingu og fjölgun herbergja.
Ath. Myndir af herbergjum eru teknar úr Standard Superior herbergi úr glænýrri viðbyggingu. Myndir af öðrum herbergjatýpum má sjá inn á heimasíðu Hótel Búða.








