
🎶 Tónlistarhelgi á Hótel Búðum – Páll Óskar 🎶
Ath.
aðeins tvö superior standard herbergi laus á laugardeginum.
Komdu og njóttu á Hótel Búðum föstudaginn 31. október eða laugardaginn 1. nóvember - í lifandi tónlist, mat, drykk & dásamlegri gistingu.
Njóttu einstakrar kvöldstundar á Hótel Búðum í fylgd tónlistarinnar sem allir elska! Páll Óskar, okkar kæri diskó og stemningsmaður ætlar að starta tónlistarveislunni á Hótel Búðum þetta árið! Þessi magnaði tónlistarmaður, með sinn glæsilega og glitrandi feril, ætlar að skapa ógleymanlega kvöldstund fyrir hótelgesti með sínum frábæra sjarma og úrvali frábærra laga.
Innifalið í verði fyrir tvo:
- Fordrykkur
- Þriggja rétta kvöldverður
- Tónleikar í hlýlegu andrúmslofti
- Gisting í huggulegu herbergi í eina nótt
- Ljúffengur morgunverður
Hótel Búðir er eitt fegursta sveitahótel landsins með mikla sögu og hefur nýlega gengist undir endurbætur, meðal annars með nýbyggingu og fjölgun herbergja. Skelltu þér á viðburð á Snæfellsnesinu sem sameinar frábæra tónlist, ljúffengan mat og kyrrláta fegurð náttúrunnar.
Dagskrá:
Innritun frá kl 15
Kvöldverður frá kl 18. - tímasetning bókuð síðar
Tónleikar í lounge rýminu kl 21/21.30
Morgunverður frá 8-10
Útritun kl 11
Glimmer, glamúr og allir gordjös ... Við hlökkum til að taka á móti þér & þínum!
Ath. Myndir af herbergjum eru teknar úr Standard Superior herbergi úr glænýrri viðbyggingu. Myndir af öðrum herbergjatýpum má sjá inn á heimasíðu Hótel Búða.
Tryggðu þér sæti í tíma – takmarkað framboð.
Ath. Vegna mikillar aðsóknar er ekki hægt að nýta gjafabréf yfir tónleikahelgar. Gjafabréfin gilda hins vegar alla aðra daga (okt til lok maí) og við hlökkum til að taka á móti ykkur.