Ath. Uppselt bæði föstudags- & laugardagskvöld.
Stefán Hilmarsson á Hótel Búðum
Tónlistarveisla með kvöldverði & gistingu
Tónlistarveislan á Hótel Búðum snýr aftur í þriðja sinn og hefur fest sig í sessi sem einn vinsælasti vetrarviðburður landsins. Sex helgar í röð fyllist hótelið af lifandi tónlist, einstökum mat og hlýlegri stemningu í hjarta Snæfellsness.
Helgina 6. og 7. nóvember mun einn af okkar ástsælustu tónlistarmönnum landsins, Stefán Hilmarsson, mæta á Hótel Búðir og flytja öll sín bestu lög sem hafa fylgt þjóðinni um árabil. Árið í ár er sérstaklega frábært því Stefán fagnar ekki einungis sínu eigin stórafmæli heldur einnig viðburðaríkum ferli sem spannar fjörtíu vetur. Viðburðurinn verður því uppfullur af frábærri tónlist, stemningu, góðum mat og notalegri dvöl á hótelinu.
Innifalið fyrir tvo
• Fordrykkur við komu
• Þriggja rétta kvöldverður
• Lifandi tónleikar með Stefáni Hilmarssyni í lounge rými hótelsins
• Gisting í eina nótt
• Ljúffengur morgunverður daginn eftir
Tryggðu þér sæti í tíma. Undanfarin tvö ár hafa nær allar tónlistarhelgar selst upp og eftirspurnin verið gríðarleg.
Við hlökkum til að taka á móti þér og þínum!
Fyrir fyrirtækja- og hópabókanir er hægt að hafa samband á budir@budir.is





















