Gisting, matur & tónleikar - allt þetta á þessu ótrúlega verði fyrir tvo.
Frábær upplifun á Hótel Búðum framundan.
Síðustu helgina í nóvember mun sjálfur Helgi Björns lýsa upp vetrarkvöldið með einstökum tónleikum, þar sem hann mun flytja öll sín bestu lög—og kannski jafnvel nokkur jólalög, ef hann nennir.. !
Komdu og njóttu töfrandi dvalar þar sem tónlist mætir hefð og huggulegheita.
Innifalið í verði fyrir tvo:
Tónleikar með Helga ásamt undirleikara,
dýrindis þriggja rétta kvöldverður,
gisting í eina nótt í heillandi herbergi
og ljúffengur morgunverður morguninn eftir.
Hótel Búðir er tvímælalaust eitt fegursta sveitahótel landsins. Einstakt hótel, með mikla sögu og hefur nú sömuleiðis gengist undir framkvæmdir og endurbætur. Hótelið verður fallega skreytt og töfrandi umhverfið og snævi þaktur Snæfellsjökull mun skapa fullkominn bakgrunn fyrir þessa einstöku dvöl.
Ekki missa af þessu fullkomna vetrarfríi—bókaðu pakkann í tíma og leyfðu þér að hlakka til.
Það munu allir bera sig vel á Hótel Búðum!
Ath. Myndir af herbergjum eru teknar úr Standard Superior herbergi úr glænýrri viðbyggingu. Myndir af öðrum herbergjatýpum má sjá inn á heimasíðu Hótel Búða.