Sigga Beinteins & Grétar Örvarsson á Hótel Búðum
Tónlistarveisla með kvöldverði & gistingu
Tónlistarveislan á Hótel Búðum snýr aftur í þriðja sinn og hefur fest sig í sessi sem einn vinsælasti vetrarviðburður landsins. Sex helgar í röð fyllist hótelið af lifandi tónlist, einstökum mat og hlýlegri stemningu í hjarta Snæfellsness.
Helgina 13. og 14. nóvember munu ein af okkar ástsælustu tónlistarmönnum landsins, Sigga Beinteins og Grétar í Stjórninni, mæta á Hótel Búðir og flytja öll sín bestu lög sem hafa fylgt þjóðinni um árabil. Viðburðurinn verður því uppfullur af frábærri tónlist, stemningu, góðum mat og notalegri dvöl á hótelinu.
Innifalið fyrir tvo
• Fordrykkur við komu
• Þriggja rétta kvöldverður
• Lifandi tónleikar með Siggu og Grétari í lounge rými hótelsins
• Gisting í eina nótt
• Ljúffengur morgunverður daginn eftir
Tryggðu þér sæti í tíma. Undanfarin tvö ár hafa nær allar tónlistarhelgar selst upp og eftirspurnin verið gríðarleg.
Við hlökkum til að taka á móti þér og þínum!
Fyrir fyrirtækja- og hópabókanir er hægt að hafa samband á budir@budir.is





















