🎶 Katrín Halldóra á Hótel Búðum 🎶
Komdu og njóttu á Hótel Búðum laugardaginn 18. apríl. Dásamlegir tónleikar, matur, drykkur & gisting í fegurðinni á Snæfellsnesi. Blanda sem getur ekki klikkað.
Njóttu einstakrar kvöldstundar á Hótel Búðum en Katrín Halldóra, hin yndislega og hæfileikaríka söng- og leikkona, ætlar að mæta og heilla gesti með sínum dásamlega söng.
Katrín mun flytja hinar ýmsu dægurperlur þar sem rómantíkin mun svífa yfir vötnum. Tónlistin mun njóta sín einkar vel í einstöku og söguríku umhverfi hótelsins.
Innifalið í verði fyrir tvo:
- Fordrykkur
- Þriggja rétta kvöldverður
- Tónleikar með Katrínu Halldóru ásamt Hirti Ingva Jóhanns píanóleikara
- Gisting í huggulegu herbergi í eina nótt
- Ljúffengur morgunverður
Hótel Búðir er eitt fegursta sveitahótel landsins með mikla sögu og hefur nýlega gengist undir endurbætur, meðal annars með nýbyggingu og fjölgun herbergja. Skelltu þér á viðburð á Snæfellsnesinu sem sameinar frábæra tónlist, ljúffengan mat og kyrrláta fegurð náttúrunnar.
Dagskrá:
Innritun frá kl 15
Kvöldverður frá kl 18 - tímasetning bókuð síðar
Tónleikar í lounge rýminu kl 21/21.30
Morgunverður frá 8-10
Útritun kl 11

Ath. Myndir af herbergjum eru teknar úr Standard Superior herbergi úr glænýrri viðbyggingu. Myndir af öðrum herbergjatýpum má sjá inn á heimasíðu Hótel Búða.
Tryggðu þér sæti í tíma – takmarkað framboð.
Ath. Vegna mikillar aðsóknar er ekki hægt að nýta gjafabréf yfir tónleika-/viðburðahelgar. Gjafabréfin gilda hins vegar alla aðra daga (okt til lok maí) og við hlökkum til að taka á móti ykkur.












