Gisting, matur & tónleikar - allt þetta á þessu ótrúlega verði fyrir tvo.
Frábær upplifun á Hótel Búðum framundan.
Una Torfa, söngkona, hljóðfæraleikari, texta- og lagahöfundur hefur svo sannarlega sett svip sinn í íslenskt tónlistarlíf síðan fyrsta platan hennar Flækt og týnd og einmana kom út árið 2022, og nú nýbúin að gefa út nýja plötu sem ber heitið Sundurlaus samtöl. Með hennar einskæru ljúfu og tæru röddu munu gestir njóta nærveru hennar í lögum eins og Fyrrverandi, Þú ert stormur og En. Mannlegir textar og grípandi laglínur eins og best verður á kosið
Komdu og njóttu töfrandi vetrardvalar þar sem tónlist mætir hefð og huggulegheita.
Innifalið í verði fyrir tvo:
Tónleikar með Unu ásamt undirleikara,
dýrindis þriggja rétta kvöldverður,
gisting í eina nótt í heillandi herbergi
og ljúffengur morgunverður morguninn eftir.
Hótel Búðir er tvímælalaust eitt fegursta sveitahótel landsins. Einstakt hótel, með mikla sögu og hefur nú sömuleiðis gengist undir framkvæmdir og endurbætur. Hótelið verður fallega skreytt og töfrandi umhverfið og snævi þaktur Snæfellsjökull mun skapa fullkominn bakgrunn fyrir þessa einstöku dvöl.
Ekki missa af þessu fullkomna vetrarfríi—bókaðu pakkann í tíma og leyfðu þér að hlakka til.
Þetta líf er allt í læ.. sérstaklega á Hótel Búðum!
Ath. Myndir af herbergjum eru teknar úr Standard Superior herbergi úr glænýrri viðbyggingu. Myndir af öðrum herbergjatýpum má sjá inn á heimasíðu Hótel Búða.