🎶 Uppistand með Ara Eldjárn á Hótel Búðum🎶
Komdu, leyfðu hlátrinum að brjótast út og njóttu á Hótel Búðum föstudaginn 10. eða laugardaginn 11. apríl. Uppistand, matur, drykkur & dásamleg gisting. Blanda sem getur ekki klikkað.
Njóttu einstakrar kvöldstundar á Hótel Búðum en sjálfur Ari Eldjárn mætir á svæðið og ætlar að skapa ógleymanlega stemningu eins og honum einum er lagið í einstöku umhverfi Snæfellsness.
Innifalið í verði fyrir tvo:
- Fordrykkur
- Þriggja rétta kvöldverður
- Uppistand með Ara
- Gisting í huggulegu herbergi í eina nótt
- Ljúffengur morgunverður
Hótel Búðir er eitt fegursta sveitahótel landsins með mikla sögu og hefur nýlega gengist undir endurbætur, meðal annars með nýbyggingu og fjölgun herbergja. Skelltu þér á viðburð á Snæfellsnesinu sem sameinar frábæra uppistand, ljúffengan mat og kyrrláta fegurð náttúrunnar.
Dagskrá:
Innritun frá kl 15
Kvöldverður frá kl 18 - tímasetning bókuð síðar
Uppistand í lounge rýminu kl 21/21.30
Morgunverður frá 8-10
Útritun kl 11
... Það verður að vera gaman, annars er svo leiðinlegt!

Ath. Myndir af herbergjum eru teknar úr Standard Superior herbergi úr glænýrri viðbyggingu. Myndir af öðrum herbergjatýpum má sjá inn á heimasíðu Hótel Búða.
Tryggðu þér sæti í tíma – takmarkað framboð.
Ath. Vegna mikillar aðsóknar er ekki hægt að nýta gjafabréf yfir tónleika-/viðburðahelgar. Gjafabréfin gilda hins vegar alla aðra daga (okt til lok maí) og við hlökkum til að taka á móti ykkur.












